|

Hestanudd - Hvað er nú það ?
Hestanudd - margir glotta út í annað þegar þeir heyra það nefnt. Staðreyndin er nú samt sú að byrjað var að nudda dýr fyrir u.þ.b. 3000 árum síðan, í Grikklandi! Þá þegar gerðu menn sér grein fyrir góðum áhrifum nudds á dýr, t.d. betri hreyfingar, fallegra hárafar og aukin vellíðan. Dýranudd týndist einhverra hluta vegna en Bandaríkjamaðurinn Jack Meagher hóf að nudda hesta á sjötta áratugnum. Frá því að hann byrjaði hefur hann nuddað yfir 250 þús. hross og þróað kerfi sem hentar öllum hestakynjum.
Nudd losar um vöðvaspennu og hreinsar úrgangsefni úr vefjum og örvar blóðrásina. Hesturinn, þetta vöðvamikla afreksdýr, er eins og skapað fyrir nudd. Húð hestsins er þynnri og næmari en mannsins og því svarar hesturinn nuddi mjög vel. Vegna þessa næma snertiskyns eru tjáskipti í gegnum snertingu honum eðlileg.
Margir vöðvar í líkama hestsins vinna stöðugt, gerðu þeir það ekki félli hesturinn saman! Vöðvaspenna getur stafað af ýmsum orsökum s.s. yfirálagi stöðugu svæðisbundnu áreiti, skyndilegum óundirbúnum hreyfingum, einhliða brúkun, áverkum, beinsköðum, innvortis verkjum, slæmum hófum, vandamálum í munni og andlegu álagi.
Vöðvaspenna orsakast af því að vöðvatrefjar klessast saman sem hindrar eðlilegt blóðflæði og innri ræstingu. Slík vöðvaspenna myndast af sársauka sem líkaminn bregst við með því að einangra hann í vöðvahnút. Verið getur að vöðvar sem vinna í beinu samhengi með spenntum vöðva reyni að létta undir og þá er líklegt að keðjuverkunin hefjist. Í hestinum finnast vöðvahópar sem vinna hver gegn öðrum þ.e. þegar einn hópurinn er undir álagi slaknar á hinum og öfugt. Ef slíkt jafnvægi raskast getur það leitt til þess að báðir vöðvahóparnir spennist upp. Má í þessu sambandi benda á að sé hestur aumur í bakvöðvum er hætt við að kviðavöðvar séu það einnig.
Hesturinn svarar nuddi á margvíslegan hátt. Eins og áður er sagt örvast blóðrásin sem eykur súrefnisupptöku og úrgangsefnahreinsun. Nudd hefur einnig áhrif á ósjálfráða taugakerfið eins og hjarta og meltingarveg. Nudd leysir úr læðingi slakandi (vellíðunar) taugahormón en það hefur jákvæð áhrif á hreysti og styrkir um leið ónæmiskerfi hestsins. Vöðvar og sinar mýkjast og feldurinn verður gljámeiri og fallegri.
Hestar bregðast mismunandi við nuddi. Einkum á það við í fyrsta sinn. Þeir verða gjarnar órólegir og pirraðir þar til maður finnur rétta punktinn. Þá láta þeir sér vel líka. Margir geipsa, frísa, þurfa að klóra sér, vagga sér í takt við hreyfingar nuddarans, verður mál, verða gælnir og eru jafnvel við það að sofna. Öll þessi einkenni benda til aukins blóðstreymis og hormónamagns, o.s.frv.
Nudd er ekki skaðlegt hestinum. Rétt er þó að benda á að það leysir aldrei dýralækninn af hólmi. Í lang flestum tilvikum gerir það þó hestinum gott og víst er að það skemmir aldrei fyrir!
Catrin Annica Engström.

Síðan er ennþá í vinnslu! Endilega kíkið á það sem komið er :)
|
|
Nýtt á síðunni
- "Hnakkar" í dálknum Greinar".
"Sadlar"
- Flestir textar og upplýsingar verða birt á bæði íslensku og sænsku.
Upplysingar & texter kommer att publiceras på svenska & isländska.
- "Bakvandamál í hrossum" er hægt að lesa í dálknum "Greinar". "Ryggproblem hos hästar"
- Upplýsingar um námskeið og meðhöndlun.

22.05.10. Við vorum að keyra um í Heimsenda hestahverfinu, og rákumst á þetta fallega folald og hryssu. Auðvitað var ekki annað hægt en að taka nokkrar sætar myndir og setja hérna inn.
Folaldið kallast Gunnar frá Hlíðarenda og fæddist 20. maí, aðeins tveggja daga gamalt þegar myndirnar voru teknar. |